Í dag, mánudaginn 3. október, var haldinn annar fundur samráðshóps sem vinnur að lausn þess vanda sem við blasir varðandi launakjör lögreglumanna.

 

 

Fyrsti fundur vegna þessa vanda, sem uppi er, var haldinn að ósk LL fimmtudaginn 29. september s.l. kl. 14:00.  Fundinn sátu af hálfu ríkisvaldsins, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra auk ráðuneytisstjóra forsætis-, fjármála- og innanríkisráðherra.  Þá voru einnig aðrir fulltrúar fjármálaráðuneytisins á fundinum.  Af hálfu LL sátu fundinn, formaður, varaformaður, ritari og framkvæmdastjóri LL en auk þeirra var fenginn á fundinn Sveinn Ingiberg Magnússon, fyrrverandi formaður LL – vegna sérþekkingar hans og reynslu við gerð kjarasamninga.  Hann mun taka þátt í viðræðunum næstu daga og eftir þörfum áfram.

 

Á fundinum var fjármálaráðherra gerð grein fyrir þeirri grafalvarlegu stöðu sem upp væri komin, innan raða lögreglumanna, í kjölfar niðurstöðu gerðadóms þann 23. september s.l.  Þetta var í raun ítrekun á fyrri samskiptum LL við stjórnvöld en þeim hafði verið gerð grein fyrir þeirri stöðu sem uppi væri og kynni að verða ef niðurstaða gerðardómsins færi á þá leið sem raun bar vitni.

Í máli fjármálaráðherra kom eftirfarandi fram:

 

  1. Úrvinnsla bókunar gerðardómsins varðandi 13.000,- kr. hækkun álagsgreiðslunnar (15.000,- kr.) sem kom inn með gerðardómsniðurstöðunni í júní 2010.
  2. Öryggismál og starfsumhverfi lögreglumanna.
  3. Menntunarmál lögreglumanna – möguleg tilfærsla hluta eða alls náms Lögregluskóla ríkisins á háskólastig.
  4. Verkfallsréttur endurheimtur
  5. Eftirlaunamál – snemmtaka lífeyris.
  6. Skipulagsbreytingar.

 

 

Ákveðið var á þessum fyrsta fundi að skipaður skyldi sérstakur starfshópur til að vinnna hratt og örugglega að þeim bráðavanda sem uppi væri og var fyrsti fundur þess hóps ákveðinn föstudaginn 30. september kl. 13:00.

 

Á þessum fyrsta fundi gerðu fulltrúar LL ríkisvaldinu það ljós að til þess að mögulega væri hægt að lægja þær óánægjuraddir og -öldur sem eru innan stéttarinnar um þessar mundir þyrftu að koma til aukin verðmæti inn í launalið kjarasamningsins þ.e.a.s. að ekki væri hægt að vinna á forsendum ríkisvaldsins við yfirfærslu 13.000,- kr. inn í launatöflu LL.  Forsendur ríkisvaldsins gera ráð fyrir umreiknun heildarverðmæta 13.000,- kr. fyrir alla stéttina með þeim margfeldisáhrifum sem slík hækkun hefði á yfirvinnugreiðslur, vaktaálag, bakvaktaálag og aðrar launagreiðslur sem eru í prósentuhlutfalli við grunnlaun.  Útfærsla ríkisvaldsins gæti – mögulega – haft það í för með sér að í stað 13.000,- kr. hækkunar grunnlauna væri sú upphæð kannski á bilinu 7.000 – 9.000,- kr. að teknu tilliti til afleiddra hækkana á yfirvinnu o.fl. sbr. það sem að ofan er ritað.

Fulltrúar LL á fundinum gerðu ríkisvaldinu það ljóst að lögreglumenn gætu aldrei sætt sig við aðra útfærslu þessara verðmæta en að 13.000,- kr. hluti álagsgreiðslunnar kæmi með fullum þunga inn í launalið kjarasamningsins.

Þá gerðu fulltrúar LL ríkisvaldinu einnig grein fyrir því að úrvinnsla 1. tl. af þeim sem fjármálaráðherra nefndi til sögunnar yrði að ná viðunandi “lendingu” fyrir launakeyrslu þann 1. nóvember n.k.  Fulltrúar ríkisvaldsins gerðu sér grein fyrir stöðunni og sögðu ekkert því til fyrirstöðu af þeirra hálfu að afgreiða 1. tl. fyrir áðurnefnda launagreiðslu.

Varðandi aðra liði sem nefndir voru til sögunnar af fjármálaráðherra þ.e.a.s. liðir 2 – 6 hér að ofan er ljóst að:

 

2. Öryggismál og starfsumhverfi lögreglumanna er atriði sem þarf lengri tíma til úrvinnslu en svo að afgreiðsla þessa liðar náist fyrir n.k. mánaðamót enda kalla úrvinnsla þessa liðar á aðkomu m.a. Vinnueftirlitsins.

 

3. Menntunarmál lögreglumanna – möguleg tilfærsla hluta eða alls náms Lögregluskóla ríksins á háskólastig er augljóslega atriði sem m.a. kallar á aðkomu menntamálaráðuneytisins.  LL gerir sér einnig grein fyrir því að hér er um lengri tíma markmið að ræða og eitthvað sem þarf að ígrunda afar vel m.a. með úttekt á núverandi námi, samanburði á námi í Lögregluskóla ríksins og lögregluskóla hinna Norðurlandanna o.fl.  Sem fyrsta skref í þessa átt væri þó hægt að stíga það skref, við framlagningu væntanlegs frumvarps um skipulagsbreytingar í lögreglu að gera það að skilyrði að til þess að geta hafið nám í Lögregluskóla ríkisins þurfi þeir sem um það sækja að lágmarki að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun.  Fulltrúi dómsmálaráðherra á fundinum tók undir þessi orð og sagði í raun ekkert því til fyrirstöðu að setja inn slíka breytingu á inntökuskilyrðum í Lögregluskóla ríkisins.

 

4. Verkfallsrétturinn endurheimtur – Fulltrúar LL sögðu einfaldlega “Já takk” við þessari hugmynd!

 

5. Eftirlaunamál – snemmtaka lífeyris.  Þessi liður helst í hendur við boðaðar skipulagsbreytingar í lögreglu og gerðu fulltrúar LL fulltrúum ríkisvaldsins grein fyrir því að fara yrði þessa leið á forsendum LL, sem þegar hafa verið kynntar lögreglumönnum hér á þessari síðu og má einnig sjá í “Kjarabók LL” frá árinu 2008. Varað var sérstaklega við að gera greinarmun á milli manna eftir því hvort menn væru iðgjaldagreiðendur í A- eða B-deild lífeyrissjóðsins.  Tekið var undir hugmyndir fjármálaráðherra um að setja á laggirnar sjóð sem gerði mönnum og ríkisvaldinu kleift að láta þetta ná yfir lengra tímabil, einkum til að gera fleiri einstaklingum kleift að nýta sér þennan möguleika.  Aðalmálið væri að vanda sig við framsetninguna en einnig til að reyna að fyrirbyggja deilur og málarekstur af hálfu félagsmanna.

 

6. Skipulagsbreytingar.  LL lagði áherslu á það að eftirlaunamálin – snemmtaka lífeyris yrði að haldast í hendur við boðaðar skipulagsbreytingar í lögreglu og nauðsynlegt væri, fyrir margra hluta sakir, að fara í þá vinnu og tryggja að slík opnun á snemmtöku lífeyris fylgdi boðuðum skipulagsbreytingum í lögreglu en með því að fara þá leið væri mun auðveldara að ná fram markmiðum stjórnvalda með boðuðum skipulagsbreytingum.

 

Á öðrum fundi samráðhshópsins, sem haldinn var í fjármálaráðuneytinu í dag kl. 14:00 fór mestur hluti fundartímans í það að ræða 1. tl. í því sem fjármálaráðherra hafði nefnt til sögunnar á fundinum s.l. fimmtudag.  Ljóst er að ríkisvaldið gerir sér fyllilega grein fyrir því að eina leiðin til að slá á þá óánægju sem er innan raða lögreglumanna er að koma inn með aukin verðmæti í launalið samningsins þ.a. hægt sé að færa 13.000,- kr. hluta álagsgreiðslunnar beint inn í allar launatölur í launatöflu lögreglumanna.

 

Á fundinum fóru fulltrúar LL yfir þær leiðir sem eru færar, til úrlausnar launaóánægjunnar, en þær fela m.a. og mögulega í sér einhverja umröðun starfa í stofnanasamningi LL.  Nánari útfærsa þessara hugmynda verða skoðaðar á næsta fundi starfshópsins sem boðaður hefur verið kl. 14:30 á morgun.

 

Ljóst er, eftir þennan fund, að fullur hugur er, af hálfu ríkisvaldsins að leysa á sanngjarnan hátt þann vanda sem við blasir en til þess þarf þó ákveðinn tíma og vinnufrið en ríkisvaldið kvaðst reiðubúið til þess og af fullri alvöru að leysa þennan þátt fyrir næstu launakeyrslu þann 1. nóvember n.k!  Ákveðið var að kalla til fulltrúa lögreglustjórafélagsins á næsta eða þarnæsta fund til að fara yfir útfærslu þeirrar lausnar sem unnið var með í dag þ.a. lögreglustjórarnir væru fullmeðvitaðir um stöðu mála og hverjar lausnirnar væru.  Þetta er sú leið sem er fær og gefur okkur og ríkisvaldinu kost á að útfæra þetta þannig að báðir aðilar geti unað nokkur sáttir við sitt og einnig sem réttlæting gagnvart öðrum hópum sem þegar hafa gert vart við sig gagnvart ríkinu.

 

Varðandi aðra liði í því sem fjármálaráðherra nefndi til sögunnar var ákveðið á þessum fundi í dag að koma töluliðum 2 – 6, með sameiginlegu bréfi deiluaðila, í fastmótaðan farveg t.d. með því að skipa sérstaka starfshópa til að fjalla um þessa liði en eins og kemur fram hér að ofan er ljóst að kalla þarf til fulltrúa annarra ráðuneyta en fjármála- og innanríkis svo hægt sé að koma þessari vinnu af stað.

 

Það er mat fulltrúa LL á þeim þremur fundum, sem haldnir hafa verið til þessa, til að leita leiða til að slá á þá óánægju sem er meðal lögreglumanna með sín launakjör að sú samstaða lögreglumanna, sem birst hefur undanfarnar vikur og mánuði hefur orðið til þess að vekja ríkisvaldið til alvarlegrar umhugsunar um þessa stöðu.  Svo alvarlegrar umhugsunar að ráðamönnum stendur ekki lengur á sama!  Lögreglumenn verða aftur að halda vöku sinni og vera hér eftir, sem hingað til, tilbúnir til áframhaldandi og jafn afgerandi stuðnings við forystu sína sem í ljós hefur komið á umliðnum dögum og vikum!