Fréttir

Yfirvinna orsök þunglyndis og kvíða?

22 jún. 2008

Í frétt á www.visir.is þann 18. júní s.l. ritaði Atli Steinn Guðmundsson fróðlega grein um nýlega rannsókn, sem unnin var í Noregi, á orsakasamhengi milli yfirvinnu og þunglyndis og kvíða.

Umrædd frétt hljóðar svo:

„Fólki sem vinnur yfirvinnu er hættara við þunglyndi og kvíða ef marka má niðurstöður norskrar rannsóknar.  Það var hópur rannsóknarfólks við Háskólann í Björgvin í Noregi sem skoðaði rúmlega 10.000 manna hóp sem vann ýmist 40 tíma á viku og skemur eða 41 til 100 tíma.

Stuðst var við spurningalista sem lagður var fyrir hvern og einn.  Útkoman var sú að jafnvel hófleg yfirvinna yki hættuna á andlegum erfiðleikum.  Tengdi stjórnandi rannsóknarinnar þetta við aukna streitu sem fylgir yfirvinnunni en útilokaði á hinn bóginn ekki að fólk sem væri veikara fyrir þunglyndi og kvíða réði sig frekar til starfa sem krefjast langs vinnudags.

Þetta ætti meðal annars við um fólk með takmarkaða menntun og starfshæfni.  Fylgnin var mest hjá þeim sem unnu langan vinnudag og erfiðis- eða vaktavinnu.  Tilskipun frá Evrópusambandinu gerir ráð fyrir því að hámarkslengd vinnuvikunnar á sambandssvæðinu skuli vera 48 klukkustundir.“

Slóðin á fréttina er https://www.visir.is/article/20080618/FRETTIR05/890831520&SearchID=73321576808512 þar má einnig sjá myndskeið, úr fréttatíma stöðvar 2, sem fylgdi fréttinni.

Þess má einnig geta hér að félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stendur þessa dagana fyrir atkvæðagreiðslu á vef sínum www.hjukrun.is meðal félagsmanna sinna, á afstöðu þeirra til yfirvinnubanns en það er liður í kjarabaráttu félagsins.

Til baka