Fréttir

Flugumferðarstjórar semja

27 jún. 2008

Í nótt náðust  samningar í kjaradeilu Flugumferðarstjóra.

Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, segir samninginn að uppstöðu til framlengingu á fyrri samningi. Hann gildi til 31.október 2009 og feli í sér samtals um 11% hækkun. Loftur minnir á að samningurinn sé með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Miðað við aðstæður hafi samninganefnd félagsins hins vegar talið hyggilegt að ljúka málinu á framangreindum nótum.

Til baka