Fréttir

Leiðbeinendur ÍTR með sömu grunnlaun og útskrifaður lögreglumaður

25 júl. 2008

Í frétt á visir.is kemur fram að leiðbeinendur hjá vinnuskóla Reykjavíkur séu óánægðir með launakjör sín.  Í fréttinni er sagt frá því að leiðbeinendur, á aldrinum 20 – 25 ára, séu með grunnlaun upp á tæpar 149.000,- kr.  Þar kemur einnig fram að leiðbeinendur, í sama aldursflokki, hjá ÍTR séu með grunnlaun upp á um 178.000,- kr.  Laun leiðbeinenda hjá ÍTR eru nánast þau sömu og grunnlaun nýútskrifaðs lögreglumanns en þau eru kr. 181.202,- kr.

Fréttina á visir.is má lesa hér.

Til baka