Fréttir

Yfirlýsing Landssambands lögreglumanna

22 jan. 2009

Eftirfarandi yfirlýsing Landssambands lögreglumanna var send fjölmiðlum í dag:

 

Landssamband lögreglumanna fordæmir framgöngu tiltekinna einstaklinga að beita lögreglumenn alvarlegu ofbeldi en stór hópur lögreglumanna er slasaður eftir atburði undanfarinna daga og einkum eftir nóttina.

 Lögreglan hefur þá skyldu að halda uppi lögum og reglu í landinu og lögreglumenn eru einfaldlega að sinna sínum skyldustörfum við þær erfiðu aðstæður sem uppi eru í þjóðfélaginu. Lögreglumenn eru fagmenn sem vinna störf sín af alúð og vandvirkni í hvívetna og munu að sjálfsögðu gera slíkt áfram.  Á það skal einnig minnt að það ástand, sem uppi er í þjóðfélaginu, bitnar ekkert síður á lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra, en öðrum þegnum þessa lands.

Landssamband lögreglumanna höfðar til skynsemi almennings og skilnings um þessa staðreynd og hvetur alla til að gæta hófs við beitingu hins lýðræðislega réttar síns að láta skoðanir sínar í ljós og haldi sig innan marka laganna.  Rétt er að leggja á það áherslu að virði menn lögregluna að vettugi blasir ekkert annað við en algert upplausnarástand í þjóðfélaginu engum til heilla.

Þá vil Landssambandið færa því fólki þakkir sem brugðust við aðstæðum í nótt með því að slá skjaldborg um lögreglumennina og veita þeim vernd gegn grjótkasti. 

  

F.h. Landssambands lögreglumanna

Snorri Magnússon, formaður

Til baka