Fréttir

Fata og tækjanefnd LL, kallað eftir athugasemdum.

2 apr. 2009

Á síðasta þingi LL var kosin fata og tækjanefnd til styrkingar við fulltrúa LL í Fata og tækjanefnd Ríkislögreglustjóra.

Þar sem nokkur reynsla ætti að vera komin á notkun nýja einkennisfatnaðarins og eins úthlutun hans er hér með kallað eftir athugasemdum um þau atriði.  Jafnframt er kallað eftir athugasemdum við annan búnað lögreglumanna og lögreglubíla.  Nefndin mun í framhaldi skoða þessar athugasemdir og koma þeim á framfæri við fulltrúa LL í Fata og tækjanefnd Ríkislögreglustjóra og jafnframt við stjórn LL.

Þeir sem hafa athugasemdir eða ábendingar geta sent þær á netfangið; g.fylkis.fml@rls.is og er þess óskað að í subject standi Fatanefnd.  Frestur til að senda inn athugasemdir er til 24. apríl n.k.

 

Í fatanefnd LL eru Guðmundur Fylkisson, Ágúst Sigurjónsson, Páll Bergmann og Jóhanna Heiður Gestsdóttir.

 

Til baka