Fréttir

Lögreglumessa 1. maí n.k.

28 apr. 2009

Lögreglukór Reykjavíkur og Landssamband lögreglumanna standa fyrir sinni árlegu 1. maí messu nk. föstudag kl. 11. 

 

 

Að þessu sinni fer messan fram í Selfosskirkju.  Prestur verður sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og ræðumaður er Margrét Frímannsdóttir, forstjóri Litla-Hrauns.

 

Lögreglumenn taka þátt í guðsþjónustunni og Lögreglukórinn syngur. 

Eftir guðþjónustuna verður að venju boðið uppá kaffi og léttar veitingar í safnaðarheimilinu.

 

Lögreglumenn og aðrir starfsmenn lögregluembætta eru hvattir til að fjölmenna til messu og mæta prúðbúnir í hátíðarbúningi af þessu tilefni.

 

Kveðja

 

Landssamband lögreglumanna og Lögreglukór Reykjavíkur

Til baka