Það sýður á baklandinu!
25 maí. 2009
Dagana 27 – 29 maí n.k. heldur Landssamband danskra lögreglumanna (Politiforbundet) sitt 71. þing á Scandic Hotel í Kaupmannahöfn.
Mikil reiði ólgar meðal danskra lögreglumanna m.a. vegna undirmönnunar, innantómra loforða stjórnmálamanna o.fl, eins og lesa má í fréttatilkynningu Politiforbundet, vegna þingsins, á heimasíðu þess hér.
Rúmlega 200 þátttakendur eru skráðir til þingsins og munu formaður og ritari LL, sitja þingið í boði Politiforbundet. Nánar mun verða fjallað um þingið hér á heimasíðu LL síðar.