„Norræn velferðarlögregla“
23 ágú. 2009
Á bls. 23. í Fréttablaðinu, laugardaginn 22. ágúst s.l. birtist grein eftir Runólf Þórhallsson, lögregluvarðstjóra. Í greininni fer hann yfir sviðið, frá því að hann gekk í lögregluna í Reykjavík sumarið 1988 og hvernig þróunin hefur verið til dagsins í dag.
Greinin er afar góð úttekt á stöðu lögreglunnar og hvernig hún hefur þróast á höfuðborgarsvæðinu.
Grein Runólfs má lesa hér.
Þá er einnig, í sama blaði, á bls. 30, ítarlegt viðtal við Gísla Jökul Gíslason, lögreglumann á höfuðborgarsvæðinu og Erlu Dögg Guðmundsdóttur, en hún er ein þeirra sem útskrifuðust úr lögregluskóla ríkisins í desember 2008, skv. áætlunum stjórnvalda um eðlilega endurnýjun í lögreglunni, en var sagt upp störfum í lögreglunni í byrjun maí s.l. vegna fjárskorts hins opinbera.
Hægt er að skoða það eintak Fréttablaðsins, sem um ræðir, hér.