Fréttir

Kjaraviðræður

12 sep. 2009

Eins og fram hefur komið hér, á þessari síðu, eru kjaraviðræður LL við fjármálaráðherra nú komnar inn á borð ríkissáttasemjara, í kjölfar þess að framlengingarsamkomulag (nr. 2 frá s.l. hausti) LL við fjármálaráðherra var kolfellt í kosningu félagsmanna um samkomulagið.

 

Fyrsti fundur, undir forystu ríkissáttasemjara, var haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara þann 1. mars s.l. 

Ráðgert var að annar fundur samninganefnda LL og SNR yrði haldinn í liðinni viku, undir forystu ríkissáttasemjara en ekkert varð af þeim fundi.

Nánar verður greint frá framgangi viðræðnanna hér á þessari síðu, á lokuðu svæði félagsmanna.

Félagsmenn LL eru hvattir til að fylgjast með fréttum af framgangi kjaraviðræðnanna á lokuðu svæði félagsmanna LL, undir hlekknum „Laun 09“ sem hægt er að komast inn á hér til vinstri á þessari síðu.

Til baka