Fréttir

Fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slasa lögreglumann!

21 okt. 2009

Í frétt á mbl.is í gær, kemur fram að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slasa lögreglumann með þeim afleiðingum að hann rifbeinsbrotnaði og tognaði á fingri.

Í dómnum kemur fram að ástæða skilorðsbindingarinnar hafi verið sú að brotin hafi verið framin fyrir þremur árum og engin skýring hafi komið fram á þeim drætti sem varð á rannsókninni.

Dóminn sjálfan, í máli S-539/2009 má lesa hér.

Til baka