Fundur hjá Lögreglufélagi Reykjvíkur
12 des. 2009
Mánudaginn 14. desember n.k. kl. 15:30 stendur Lögreglufélag Reykjavíkur (LR) fyrir félagsfundi, í fundarsal BSRB að Grettisgötu 89 1. hæð, vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga í lögreglu.
Dómsmálaráðherra, Frú Ragna Árnadóttir, ásamt Hauki Guðmundssyni, skrifstofustjóra löggæsluskrifstofu dómsmálaráðuneytisins munu fara yfir fyrirhugaðar skipulagsbreytingar í lögreglu.
Þá mun Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna einnig ávarpa fundinn.
Allir lögreglumenn, starfandi á höfuðborgarsvæðinu, eru hvattir til að fjölmenna til fundarins!