Fréttir

Lausar stöður lögreglumanna í Vestmannaeyjum

8 jan. 2010

Á Starfatorgi (www.starfatorg.is) eru nú auglýstar lausar til umsóknar tvær stöður lögreglumanna við embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum.

Gert er ráð fyrir því að skipað verði í þessar tvær stöður, til fimm ára, frá 1. febrúar n.k.

Þá er einnig auglýst ein afleysingastaða frá 1. mars n.k. til 31. ágúst n.k, í sama liði.

Umsóknarfrestur um allar þrjár stöðurnar er til 25. janúar n.k.

Auglýsinguna um þessar stöður er hægt að nálgast hér.

Til baka