Fréttir

Maí kórinn – kór BSRB

28 jan. 2010

Komdu í kór!

Maí kórinn er kór BSRB félaga og er opinn öllum félögum í aðildarfélögum BSRB, vinum þeirra og vandamönnum.

Kórfélagar hittast einu sinni í viku á þriðjudagskvöldum kl. 20:15 í BSRB húsinu, Grettisgötu 89 og syngja saman fjölbreytt lög undir styrkri stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur.  Í hópnum er vant söngfólk og óvant, bæði karlar og konur.  ALLIR ERU VELKOMNIR!

Vertu með í skemmtilegum og gefandi félagsskap.  Það kostar ekkert að taka þátt.

Til baka