Fréttir

Lausar stöður lögreglumanna hjá lögreglustjóranum á Selfossi

15 feb. 2010

Hjá lögreglustjóranum á Selfossi eru nú lausar, til umsóknar, fjórar stöður lögreglumanna.

Sett verður tímabundið í stöðurnar frá og með 1. apríl n.k. til og með 30. september n.k.

Jafnframt eru lausar til umsóknar fjórar til sex stöður sumarafleysingamanna og er þar um að ræða afleysingar á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 2010.

Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 1. mars 2010.

Nánari upplýsingar um stöðurnar og umsóknarferli eru hér.

Til baka