Flugumferðarstjórar undirbúa verkfallsboðun
23 feb. 2010
Á aðalfundi Félags Íslenskra flugumferðarstjóra, sem haldinn var í gærkvöldi (22. febrúar) var einróma samþykkt að félagið færi strax í að undirbúa atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir undir lok þessarar viku.
Þar með bætast flugumferðarstjórar í hóp félaga flugmanna og flugvirkja, sem áður höfðu boðað verkföll, hvort í sínu lagi. Í kjölfar þeirra verkfallsboðana var gengið frá kjarasamningum við bæði félögin.
Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu mála í kjarasamningsviðræðum flugumferðarstjóra sér í lagi í ljósi ályktunar stjórnar LL frá 17. febrúar s.l, sem lesa má hér.