Fréttir

Ályktun frá Lögreglufélagi Eyjafjarðar

25 feb. 2010

Aðalfundur Lögreglufélags Eyjafjarðar sendi frá sér eftirfarandi ályktun.

Aðalfundur í Lögreglufélagi Eyjafjarðar, haldinn þann 9. febrúar 2010, lýsir yfir megnri óánægju yfir því áhugaleysi og seinagangi sem ríkir hjá samninganefnd ríkisins í kjaraviðræðum við Landssamband lögreglumanna.  Aðalfundurinn skorar á samninganefnd ríkisins að koma nú þegar að samningaborðinu með ásættanlegt tilboð um kjarabætur til handa lögreglumönnum.  Ekki verður lengur við það unað að kjarasamningar lögreglumanna, sem hafa verið lausir frá 31. maí 2009, séu áfram ófrágengnir.

 

Lögreglufélag Eyjafjarðar.

Til baka