Fréttir

Ályktun aðalfundar Lögreglufélags Þingeyinga

5 mar. 2010

Aðalfundur Lögreglufélags Þingeyinga, haldinn 5. mars 2010, lýsir yfir þungum áhyggjum og megnri óánægju með seinagang og áhugaleysi í samningaviðræðum samninganefndar ríkisins við Landssamband lögreglumanna. 

Aðalfundurinn veltir því fyrir sér hvort að áhugaleysi stjórnvalda skýrist af því að lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt og eru því nánast vopnlausir í sinni kjarabaráttu.  Getur verið að yfirlýsingar stjórnvalda um mikilvægi lögreglunnar í landinu séu einungis í orði en ekki á borði?

Þegar þetta er skrifað hafa lögreglumenn verið samningslausir í 277 daga og er það algjörlega óviðunandi.  Aðalfundurinn skorar því á samninganefnd ríkisins að koma, sem allra fyrst, að samningaborðinu með viðunandi tilboð um kjarabætur til handa lögreglumönnum.

 

Lögreglufélag Þingeyinga.

Til baka