Lausar vikur í sumar – Fyrstur kemur, fyrstur fær
18 maí. 2010
Á orlofsvef LL er nú hægt að sjá lausar vikur í sumar. Ekki er um sérstaka úthlutun að ræða heldur fær sá sem fyrstur pantar.
Athygli er vakin á því að hver vika kostar orlofspunkta samkvæmt ákvörðun orlofsnefndar. Við bókun er ætlast til að gengið sé frá greiðslu í gegnum orlofsvefinn.
Ef einhver vandamál koma upp er hægt að hafa samband við skrifstofu LL í síma 525 8360.