Fréttir

Gerðardómur kveður upp dóm í kjaradeilu lögreglumanna

3 jún. 2010

Í samræmi við ákvæði fylgiskjals kjarasamnings LL, er varðar gerðardóm í kjaradeilu LL og þá niðurstöðu, sem varð á síðasta fundi í kjaradeilunni, undir forsæti Ríkissáttasemjara, að vísa kjaradeilunni í tilvitnaðan gerðardóm, hefur dómurinn í dag kveðið upp dómsorð í kjaradeilunni.  Athygli er vakin á því að niðurstaðan er endanleg og bindandi lausn, fyrir báða aðila kjaradeilunnar.

 

Lögreglumenn eru hvattir til að kynna sér innihald dómsins, sem er að finna á lokuðu svæði félagsmanna LL undir hlekknum „Laun 09“.

Talningu á dögum, frá því kjarasamningar LL urðu lausir, lauk á 367 degi!

Til baka