STALL, síðasti fundur fyrir sumarfrí.
14 jún. 2010
STALL fundaði í dag og afgreiddi 3 nýjar umsóknir og endurskoðaði 3 styrkbeiðnir. Um er að ræða nám í Háskóla og sérskóla þar sem sótt var um styrk vegna skólagjalda. Upphæðin í þetta skiptið var rétt um 200.000 kr. Fallist var á rök og upplýsingar sem leiddu til hækkunar á tveimur af þremur styrkjum sem óskað var endurskoðunar á.
STALL er nú farið í sumarfrí og næsti fundur verður annan mánudag í september.