Fréttir

Útlit fyrir verkfall slökkviliðsmanna

21 júl. 2010

Allt útlit er fyrir að verkfall slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefjist n.k. föstudag, 25. júlí, eins og boðað hefur verið.  Árangurslausum fundi í kjaradeilu þeirra lauk fyrir stuttu síðan í húsnæði Ríkissáttasemjara.

 

Haft er eftir Sverri Birni Björnssyni, formanni Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna að þeir hefðu alveg getað sleppt fundinum í dag þar sem ekkert hafi gerst á honum.

Nánar er sagt frá fundinum á mbl.is hér, hér og hér sem og á visir.is hér, hér og hér.

Landssamband lögreglumanna ítrekar stuðning sinn við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna en yfirlýsingu þess efnis, sem send var fjölmiðlum í upphafi vikunnar má lesa hér.

Til baka