Fréttir

Hver samningseining sér

13 okt. 2010

Á fundi samningseininga BSRB, sem haldinn var í húsnæði BSRB þann 24. september s.l. var tekin um það ákvörðun að hver samningseining innan BSRB gerði sjálf sína viðræðuáætlun við viðsemjendur sína. 

 

Það verður því ekki sama fyrirkomulag á gerð kjarasamninga og var á vor- og sumarmánuðum 2009, þegar unnið var undir merkjum svokallaðs „Stöðugleikasáttmála“.  LL hafði reyndar (sjá hér) tekið um það ákvörðun, nokkru fyrir fund samningseininganna, að vera ekki með í einhverju „samfloti“ undir merkjum framlengningar „Stöðugleikasáttmála“.

Kjarasamningar eru lausir frá og með 30. nóvember n.k. og eru lögreglumenn hvattir til að fylgjast með fréttum af framgangi málsins á lokuðu svæði félagsmanna hér á þessari síðu.

Til baka