Fréttir

STALL, úthlutunarfundur 10. janúar 2011

10 jan. 2011

STALL kom saman til fyrsta úhlutunarfundar ársins.  Fyrir fundinum lágu 9 umsóknir og voru 8 þeirra afgreiddar og samþykktar en afgreiðslu einnar var frestað.  Úthlutað var rúmlega 700.000 kr. Afgreiddar voru umsóknir vegna framhalds og háskólanáms og tvær umsóknir vegna sérhæfðs náms erlendis.

 

STALL mun leggja það til við stjórn LL að hámarksstyrkir verði hækkaðir og bætt verði inn ákvæði um enn hærri styrk til þeirra sem hafa verið 10 ár eða lengur í starfi.  Stjórn LL mun væntanlega afgreiða það erindi á stjórnarfundi í næstu viku.

STALL mun svo koma saman til næsta úthlutunarfundar 14. febrúar n.k.

Til baka