Fréttir

Skrifstofa LL lokuð nk. miðvikudag þann 13. apríl

11 apr. 2011

Á miðvikudaginn fer starfsfólk skrifstofu LL ásamt orlofsnefnd LL í Munaðarnes til að gera bústaðina klára fyrir páska- og sumarleiguna og því verður skrifstofan lokuð allan daginn. 

 

Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarin mánuð og  eru nú á lokastigi.  Bústaður nr. 68  hefur fengið mikla upplyftingu   og er í raun algerlega breyttur.  Helstu atriði sem nefna má eru að bústaðurinn var hvíttaður, nýtt parket lagt bæði í alrými og í herbergjum, litla herbergið með kojunum var fjarlægt, allt endurnýjað á baðinu, ný borðstofu og stofuhúsgögn voru keypt og ljós endurnýjuð.  Ísskápar í báðum bústöðunum voru endurnýjaðir og gúmmíhönskunum skipt út fyrir uppþvottavélar! 

Það er von orlofsnefndar að breytingarnar takist vel og mælist vel fyrir hjá félagsmönnum.  Myndir verða settar inn á vefinn í vikulok.

Til baka