Fréttir

Kjaradeila ASÍ og SA til ríkissáttasemjara?

26 apr. 2011

Í frétt á mbl.is í dag kemur fram að samninganefnd ASÍ hafi ákveðið á fundi í dag að beina því til aðildarsambanda og félaga innan ASÍ að vísa kjaradeilum við SA til ríkissáttasemjara.

 

Ljóst er, af lestri fréttarinnar, að SA sitja enn fast við sinn keip með að lausn fáist í málefni sjávarútvegsins áður en gengið verði frá kjarasamningum.  Þá hafi þeir (SA) jafnframt hafnað gerð kjarasamnings til eins árs.

 

 

Til baka