Ályktun Lögreglufélags Suðurnesja eftir félagsfund sem haldinn var þann 8. september 2011
14 sep. 2011
Ályktun Lögreglufélags Suðurnesja eftir félagsfund sem haldinn var þann 8. september 2011
Þann 8. september 2011 var haldinn fjölmennur félagsfundur félagsmanna Lögreglufélags Suðurnesja. Tilefni fundarins var að ræða veika kjaralega stöðu lögreglumanna. Senda fundarmenn frá sér eftirfarandi ályktun:
,,Lögreglumenn hafa verið kjarasamningslausir 281 dag og er það með öllu óviðunandi. Á undanförnum árum hafa þær stéttir, sem lögreglumenn bera sig svo oft saman við, fengið áunnar kjarabætur sem hefur leitt til þess að lögreglumenn hafa orðið eftirbátar þessara viðmiðunarstétta. Á þessum tíma hefur álag lögreglumanna aukist. Við þetta verður ekki unað. Þann 30. júní s.l. var kjaradeilu lögreglumanna og viðsemjenda þeirra vísað í gerðadóm. Niðurstöðu er að vænta þann 23. september nk.
Binda lögreglumenn miklar vonir við að sú niðurstaða verði lögreglumönnum ásættanleg annars er úr vöndu að ráða fyrir alla sem hlut eiga að máli. Lögreglumenn hafa verið að stilla saman strengi sína síðustu vikur þar sem þolinmæði þeirra er á
þrotum.“