Fréttir

Ályktun fundar stjórnar og formanna svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna 27.09.2011

27 sep. 2011

Ályktun fundar stjórnar og formanna svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna

 

Fundur stjórnar og formanna svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna (LL) haldinn þann 27. september 2011, lýsir yfir megnri óánægju og reiði með niðurstöðu gerðardóms sem þvinguð var fram í kjaradeilu LL við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sl. föstudag gegn mótatkvæði fulltrúa LL.

 

 

Það er ljóst að niðurstaða gerðardóms leiðréttir ekki þann mun sem er á grunnlaunum lögreglumanna og þeirra viðmiðunarstétta sem lagt var upp með þegar verkfallsréttur lögreglumanna var afnuminn með lögum frá Alþingi Íslendinga.

 

Óánægja innan raða lögreglumanna með þessa niðurstöðu hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni.  Lögreglumenn sætta sig ekki við niðurstöðuna.

 

Fundurinn bendir á að enn eru til lausnir á þeim vanda sem upp er kominn og lýsir LL sig reiðubúið til að koma að úrlausn jafnt að nóttu sem degi.  Augljóst er að slík vinna kallar á aðkomu ríkisvaldsins og nauðsynlegt að hún hefjist strax!

Til baka