Fréttir

Fundur stjórnar og formanna svæðisdeilda LL

28 sep. 2011

ÁÐUR EN LENGRA ER LESIÐ ER BRÝNT FYRIR FÉLAGSMÖNNUM LL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR SEM BIRTAST Á LOKAÐA SVÆÐI HEIMASÍÐU LL ERU EINGÖNGU ÆTLAÐAR FÉLAGSMÖNNUM EN EKKI TIL OPINBERRAR BIRTINGAR

 

Nýlokið er fundi stjórnar og formanna svæðisdeilda LL, sem hófst kl. 13:00 í dag í fundarsal BSRB hússins að Grettisgötu 89.

 

 

Á fundinn mættu Gestur Jónsson og Gísli Hall, lögmenn BSRB, og fóru yfir lagalega stöðu LL í framhaldi af úrskurði gerðardómsins s.l. föstudag.

 

Allar svæðisdeildir LL munu halda fundi sinna félagsmanna n.k. föstudagskvöld 30. september, kl. 20:00.

 

Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast vel með fréttum hér á lokaða svæðinu og ekki síður fréttum sem „kynnu“ að birtast á Facebook.  Þar hefur t.d. „mjög óvænt“ birst frétt um samstöðufund n.k. fimmtudag………

Til baka