Fréttir

Fréttatilkynning frá LL

29 sep. 2011

Í dag kl. 14:00 áttu fulltrúar Landssambands lögreglumanna (LL) fund með fjármálaráðherra, ráðuneytisstjórum forsætis-, fjármála-  og innanríkisráðuneytanna, meðlimum samninganefndar ríkisins og aðstoðarmanni fjármálaráðherra.

 

 

LL setti sig í samband við fjármálaráðuneytið í gær, þegar ljóst var að stjórnvöld virtust ekki ætla, að fyrra bragði, að hafa samband við LL og óskaði eftir fundi með fjármálaráðherra.  Brugðist var við ósk LL um fund sem tímasettur var kl. 14:00 í dag, fimmtudaginn 29. september.

 

Á fundinum reifuðu aðilar sín sjónarmið opinskátt og deila báðir áhyggjum af stöðu mála.

 

Ákveðið var að mynda vinnuhóp sem hefur störf þegar á morgun með það að markmiði að þoka málum áfram í réttan farveg.

Til baka