Fréttir

Tilkynning LL til fjölmiðla

1 okt. 2011

Til fjölmiðla: 

Reykjavík, 1. október 2011.

  

Fjölmargir lögreglumenn sem voru að störfum á Austurvelli í dag hafa verið í sambandi við Landssamband lögreglumanna og fyrir þeirra hönd er rétt að upplýsa eftirfarandi:

 

 

“Lögreglumenn sem stóðu vaktina framan við Alþingi Íslendinga í dag vilja koma þeim skilaboðum á framfæri að þeim bar skylda til að sinna lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinn – sem þeir og gerðu. 

 

Um þetta höfðu þeir ekkert val.  Þeim þykir miður að hafa verið notaður sem mannlegur skjöldur milli þingheims og þjóðar. “

 

f.h. Landssambands lögreglumanna

Snorri Magnússon, formaður

Til baka