Stofnun ársins 2012
13 maí. 2012
13 maí. 2012
Stofnun ársins 2012 í flokki stærri stofnana (50 starfsmenn eða fleiri) var Sérstakur Saksóknari en þetta er annað árið í röð sem stofnunin er í fyrsta sæti. LL óskar embættinu og starfsmönnum þess innilega til hamingju með titilinn!
Í flokki minni stofnana (20 starfsmenn eða færri) hlaut titilinn Persónuvernd. LL óskar, sömuleiðis, þeirri stofnun og starfsmönnum þess innilega til hamingju með titilinn.
Þær spurningar sem m.a. eru lagðar fram í könnuninni eru eftirfarandi:
Niðurstöðurnar fyrir þær stofnanir í könnuninni, þar sem lögreglumenn starfa, er að finna hér að neðan.
Lista, með samanburði yfir einkunnir þessara stofnanana frá því í fyrra, má nálgast á heimasíðu SFR hér.
Þar sem nokkur breyting hefur orðið á framsetningu könnunarinnar, frá því í fyrra eru hér að neðan listaðar upp upplýsingar úr heildarlista allra stofnana (þ.e. sæti á heildarlista allra stofanananna), þar sem lögreglumenn starfa, með samanburði frá árinu 2011:
Sæti 2012 | Sæti 2011 | |
Sérstakur saksóknari | 5 | 8 |
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki | 7 | 5 |
Sýslumaðurinn í Borgarnesi | 8 | 121 |
Sýslumaðurinn á Akranesi | 10 | 30 |
Lögregluskóli ríkisins | 16 | 7 |
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði | 24 | 124 |
Sýslumaðurinn á Húsavík | 27 | 42 |
Sýslumaðurinn á Ísafirði | 49 | 106 |
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli | 53 | 10 |
Sýslumaður Snæfellinga | 69 | 17 |
Sýslumaðurinn á Blönduósi | 76 | 58 |
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum | 90 | 107 |
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum | 110 | 110 |
Sýslumaðurinn í á Selfossi | 149 | 70 |
Ríkislögreglustjóri | 161 | 163 |
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu | 165 | 157 |
Sýslumaðurinn á Akureyri | 166 | 159 |
Sýslumaðurinn á Eskifirði | 172 | 165 |
a) sjá hver þróunin hefur verið þ.e.a.s. hvort lögregluembættin eru að bæta sig á milli kannana eða ekki
b) nota niðurstöðurnar í viðræðum við starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins til, eftir atvikum, að leita leiða til að bæta árangur lögregluembættanna í komandi könnunum.