Fréttir

Afdrif lögreglulagafrumvarpsins

20 jún. 2012

Ljóst má telja – út frá þeim staðreyndum að Alþingi Íslendinga er komið í frí frá og með gærdeginum (19. júní) og þess að gerðar voru breytingar á þingsköpum Alþingis í gær í þá veru að nýtt þing komi nú saman annan þriðjudag í september hvert ár þ.a. svokallaður „septemberstubbur“ þingsins er nú aflagður – að afdrif lögreglulagafrumvarps þess, sem Ögmundur Jónasson lagði fram í mars s.l., verða þau að leggja þarf frumvarpið fram að nýju á haustþinginu sem hefst í september n.k.

Til baka