Fréttir

Launakönnun BSRB

8 feb. 2013

Ný launakönnun BSRB, unnin af Capacent, er u.þ.b. að fara af stað og mega félagsmenn LL eiga von á því að fá senda hlekki inn á könnunina.  Einhverjir munu fá símtal frá Capacent (þ.e.a.s. þeir sem ekki hafa skráð virk netföng hjá LL) þar sem óskað verður eftir heimild til sendingarinnar á netfang að vali viðkomandi.

 

Samskonar könnun var unnin í fyrra en spurningum í könnuninni, sem nú er að fara í gang, hefur verið fækkað eitthvað í ljósi fenginnar reynslu af könnun s.l. árs.


Mikilvægt er að sem flestir félagar LL taki þátt í könnuninni en hún er liður baráttu aðildarfélaga BSRB fyrir bættum launum félagsmanna aðildarfélaganna.

Til baka