Fréttir

Kjarasamningur LL styttur um tvo mánuði

16 feb. 2013

BSRB hefur, fyrir hönd allra aðildarfélaga sambandsins, samið um styttingu gildistíma kjarasamnings aðildarfélaganna um tvo mánuði.  Samkomulagið er samskonar því samkomulagi sem nýverið var gert á milli ASÍ og SA á hinum almenna vinnumarkaði.

 

Þessi stytting hefur það í för með sér að í stað þess að kjarasamningur LL renni út þann 31. mars 2014, rennur hann út 31. janúar 2014.  Eingreiðslan, sem átti að koma til greiðslu þann 1. mars 2014, kemur því til greiðslu þann 1. janúar 2014.

 

Nánar er hægt að lesa fréttir um þessa styttingu kjarasamninganna í frétt á mbl.is sem og á heimasíðu BSRB þar sem einnig er hægt að nálgast samkomulagið sjálft á PDF formi.

Til baka