Fréttir

Lögreglumessa 1. maí 2013

24 apr. 2013

Að vanda stendur  Lögreglukór Reykjavíkur fyrir  lögreglumessu,  í samstarfi við Landssamband lögreglumanna, þann 1.maí nk. kl. 11:00.

 

Í framhaldi af messunni bjóða kórinn og LL upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimili kirkjunnar.

 

  • Að þessu sinni verður messan í Háteigskirkju í Reykjavík
  • Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari
  • Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, flytur ræðu
  • Organisti er Kári Allansson
  • Tómas Guðni Eggertsson er stjórnandi Lögreglukórsins

 

Við hvetjum alla lögreglumenn, starfsmenn lögreglu, velunnara lögreglunnar og fjölskyldur þeirra að taka þátt í Lögreglumessunni og eiga kyrrðarstund saman.

 

Til baka