Fréttir

Áskorun frá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum í Árnessýslu

16 ágú. 2013

Stjórn deildar Landssambands Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur sent frá sér eftirfarandi áskorun til stjórnvalda vegna ástands löggæslumála á Suðurlandi.  Áskorunin er birt hér á heimasíðu LL að beiðni deildarinnar.

 

LL tekur heilshugar undir hvert einasta orð í henni enda hefur LL margítrekað, bæði í ræðu og riti, vakið athygli á þessari grafalvarlegu stöðu sem uppi er, úti um allt land, í löggæslumálum þjóðarinnar.  Ábyrgðin á þessu ástandi liggur hjá stjórnvöldum í einu og öllu þ.m.t. þegar illa fer.  

 


 

 

Áskorun til stjórnvalda.

 

Deild Landssambands Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSu) skorar á Alþingismenn og stjórnvöld að tryggja eðlilegt fjármagn til löggæslu í Árnessýslu.

 

Lögreglumönnum við embættið hefur fækkað úr 28 árið 2007 í 24 árið 2013 og stefnir allt  í að lögreglumenn verði 21 nú um næstu mánaðamót ef aðgerðir stjórnvalda ganga eftir.

Ríkislögreglustjóri hefur áður sagt að hér þyrftu að vera starfandi 34 – 36  lögreglumenn svo hægt sé að sinna öllum þeim störfum sem krafist er af lögreglu.

 

Lögreglumenn og sjúkraflutningamenn vinna mjög náið að mörgum verkefnum. Fækkun lögreglumanna kemur niður á öryggi beggja og borgaranna sjálfra.

 

Stjórn deildar LSS hjá Hsu.

Til baka