Fréttir

Kynning á skýrslu um vinnumenningu lögreglunnar

16 okt. 2013

Á morgun, fimmtudaginn 17. október, kl. 20:00, verður haldin í sal Lögreglufélags Reykjavíkur að Brautarholti 30, almenn kynning (opinn fundur) fyrir lögreglumenn á nýútkominni skýrslu, sem unnin var af embætti Ríkislögreglustjórans í samvinnu við Háskóla Íslands og Nýsköpunarsjóð námsmanna, um „Vinnumenningu og kynjatengsl lögreglunnar“.  

 

Á fundinum mun skýrsluhöfundur, Finnborg Salome Steinþórsdóttir, fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar.

 

Lögreglumenn eru hvattir til að mæta og hlýða á kynninguna.

Til baka