32 þing LL
4 mar. 2014
32. þing LL verður haldið að Hótel Geysi í Haukadal dagana 5 og 6. maí n.k. Stjórnir svæðisdeilda LL eiga um þessar mundir, skv. lögum LL, að standa fyrir vali á fulltrúum sínum í stjórn LL, sem og til þingsetu á þingi LL.
Rétt er að vekja athygli á þeim frestum sem markaðir eru í lögum LL til framlagningar mála sem einstaklingar hafa áhuga á að tekin verði upp á þingi LL.
Áhugasömum, um setu í stjórn LL, sem og á þingi LL og vegna framlagningar mála á þingi er bent á að setja sig í samband við formenn og stjórnir sinna svæðisdeilda vegna frekari upplýsinga.