Fréttir

Fréttir af kjaraviðræðum

24 mar. 2014

Búið er að setja upp nýjan hlekk „Laun 2015“, undir hnappnum „Kjaramál“ inni á lokaða svæði heimasíðu LL þar sem settar verða inn, líkt og undanfarin ár, fréttir og aðrar upplýsingar í tengslum við komandi kjarasamninga.

 

Lögreglumenn er hvattir til að fara reglulega inn á lokaða svæðið og kynna sér þær upplýsingar sem þar er og verður að finna í tengslum við komandi kjarasamninga.  


Fréttir verða ekki fluttar, af hálfu LL, á öðrum vettvangi af gangi kjaraviðræðna enda heimasíða LL ætluð til að koma fréttum og öðrum skilaboðum til félagsmanna LL.  Því miður eru öryggisstillingar Fésbókarinnar ekki með þeim hætti að hægt sé að flytja þar fréttir sem eingöngu eru ætlaðar lokuðum hópum.

Til baka