Fréttir

Rafræn kosning um kjarasamninginn

22 apr. 2014

Kosningin um kjarasamninginn verður rafræn.  Notast verður við þau netföng sem þið hafið skráð í félagatalið hjá LL og þar sem upp á vantaði var sótt í netfangaskrá lögreglu.  Kosningin fer væntanlega í gang síðar í dag og verður opin til þátttöku til kl.12.00 föstudaginn 2. maí n.k.  Boðið verður upp á að segja já, nei og skila auðu.  Þið fáið tölvupóst frá Outcome en það fyrirtæki hefur áður séð um rafrænar kosningar fyrir okkur. 

Ef þið, einhverra hluta vegna, hafið ekki aðgang að vinnupóstinum þetta tímabil þá getið þið sent tölvupóst á mig og læt ég þá skipta út netfanginu.  Ath. að einhverjir eru með einkanetfangið skráð en ekki vinnunetfangið í félagatalinu.

 

Fh.kjörstjórnar

 

Guðm. Fylkisson

Til baka