Fréttir

Stofnun ársins 2014

10 jún. 2014

Fimmtudaginn 22. maí s.l. kynnti SFR (Stéttarfélag í almannaþjónustu, ásamt Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, niðurstöður í könnuninni „Stofnun ársins 2014“ en kannanir þessar hafa verið unnar frá árinu 2006.

 

Niðurstöður fyrir allar ríkisstofnanir er hægt að nálgast á vef SFR www.sfr.is en röðun löggæslustofnana í sæti í heildarlista könnunarinnar er sem hér segir, sbr. tvö undanfarin ár (stofnanirnar eru í stafrófsröð í listanum):

 

Löggæslustofnun 2012 2013 2014
Lögregluskóli ríkisins 16 * 74
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu 165 143 137
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 90 48 81
Ríkislögreglustjórinn 161 118 135
Sérstakur saksóknari 5 8 14
Sýslumaðurinn á Akranesi 10 12 10
Sýslumaðurinn á Akureyri 166 149 141
Sýslumaðurinn á Blönduósi 76 97 29
Sýslumaðurinn í Borgarnesi  8 44 47
Sýslumaðurinn á Eskifirði 172 140 138 
Sýslumaðurinn á Húsavík 27 20 11 
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli 53 21 9
Sýslumaðurinn á Ísafirði 49 18 22
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki 7 * 21
Sýslumaðurinn á Selfossi 149 135 114
Sýslumaður Snæfellinga 69 77 30
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði 24 87 79
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 110 68 32

 

* Engar upplýsingar fyrirliggjandi um viðkomandi stofnun í birtum lista.  Sjá nánari upplýsingar á vef SFR (www.sfr.is).

 

LL áréttar sem fyrr mikilvægi þess að allir lögreglumenn taki þátt í könnunum sem þessum, sem og öðrum könnunum sem lögreglumönnum er boðin þátttaka í, en þær eru m.a. notaðar í viðræðum við viðsemjendur LL í tengslum við úrbætur í starfsmannamálum, aðbúnaði, kjaramálum o.fl.

Til baka