Fréttir

Í aðdraganda kjarasamninga

20 feb. 2015

Nú hefur verið gefin út uppfærð útgáfa af skýrslunni „Í aðdraganda kjarasamninga“, sem fjallar um efnahagsumhverfi og launaþróun en skýrslan var fyrst unnin á árinu 2013.

 

Sama ár kom einnig út skýrslan „Kjarasamninga og vinnumarkaður á Norðurlöndum“ en hún er afrakstur samstarfs aðila vinnumarkaðarins við að kynna sér framkvæmd og umhverfi kjarasamninga á Norðurlöndunum.

 

Uppfærða útgáfa skýrslunnar var kynnt á fundi hjá Ríkissáttasemjara þriðjudaginn 17. febrúar s.l. en hún er afrakstur vinnu tveggja vinnuhópa á vegum samstarfsnefndar um launaupplýsingar sem er skipuð fulltrúum frá ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, SA, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytisins.  

Fulltrúar BSRB í vinnuhópnum eru Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB og Kristinn Bjarnason, hagfræðingur BSRB.

 

Markmið þessa samstarfs er að bæta vinnubrögð við undirbúning kjarasamninga og auka skilvirkni við gerð þeirra.

 

Eins og áður segir kom skýrslan fyrst út á árinu 2013 og er markmið þessarar uppfærðu útgáfu skýrslunnar, líkt og þeirrar fyrri, að leggja grunn að nýjum kjarasamningum, sem flestir verða lausir í lok apríl n.k.

 

Í skýrslunni er gerð grein fyrir launaþróun hjá þeim heildarsamtökum sem að samstarfinu standa frá 2006 til 2014.  Þá er einnig fjallað um stöðu og framtíðarhorfur í efnahagsmálum.  Skýrslan er því mikilvægt innlegg í það verkefni að bæta umgjörð við gerð kjarasamninga á launamarkaði á Íslandi og er það von BSRB og aðildarfélaga þess að hún gagnist vel í komandi kjarasamningum.

 

Fyrri skýrsluna frá árinu 2013 má nálgast í heild sinni hér.

 

Uppfærðu skýrsluna frá árinu 2015 má nálgast í heild sinni hér.

 

Skýrsluna „Kjarasamningar og vinnumarkaður á Norðurlöndum“ má nálgast í heild sinni hér.

Til baka