Fréttir

Opið fyrir umsóknir um orlofshús sumarið 2015

1 apr. 2015

sun.gifOpnað hefur verið fyrir umsóknir um orlofshús LL sumarið 2015. Eins og áður eru fyrstu fjórar vikurnar fráteknar fyrir félaga lífeyrisþegadeildar LL, þ.e. frá og með föstudeginum 15. maí til 12. júní. Félagar lífeyrisþegadeildar fá send til sín umsóknareyðublöð eins og áður. Almennir félagsmenn LL eiga hins vegar að sækja um orlofshús á netinu, á Orlofsvef LL með því að smella á hnappinn hægra megin á síðunni.  Umsóknarfrestur fyrir almenna félagsmenn LL er til miðnættis sunnudaginn 12. apríl.

Til baka