Fréttir

Hvernig búum við til fjölskylduvænna samfélag?

26 maí. 2015

Jafnréttisnefnd BSRB boðar til morgunverðarfundar þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 8:30-10:00 undir yfirskriftinni: Hvernig búum við til fjölskylduvænna samfélag?“

 

 

Stutt innlegg í upphafi fundar munu flytja Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB en hún mun fjalla um tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar um styttingu vinnuvikunnar og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB, mun vera með hugleiðingar um hvað felst í fjölskylduvænna samfélagi.

 

Samhliða þessu er ætlunin að ræða við fundargesti hvað felst í hugmyndum BSRB um fjölskylduvænt samfélag. Hvaða leiðir eru árangursríkastar til að byggja upp fjölskylduvænt samfélag; stytting vinnuvikunnar, sveigjanlegri vinnutími, bætt fæðingarorlofskerfi, sveigjanleg starfslok o.fl.

 

Markmiðið með fundinum er þannig að fá fram ólík sjónarmið félagsmanna til að skerpa á sýn BSRB til málefnisins.

 

Fundurinn verður haldinn á 1. hæð að Grettisgötu 89 þriðjudaginn 2. júní nk. kl. 8:30-10:00 og verður léttur morgunverður í boði. 

Til baka