Fréttir

Stofnun ársins 2015

3 júl. 2015

 

Fimmtudaginn 7. maí s.l. kynnti SFR (Stéttarfélag í almannaþjónustu), ásamt Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, niðurstöður í könnuninni „Stofnun ársins 2015“ en kannanir þessar hafa verið unnar samfellt frá árinu 2006.

 

Niðurstöður fyrir allar ríkisstofnanir er hægt að nálgast á vef SFR www.sfr.is en röðun löggæslustofnana í sæti í heildarlista könnunarinnar er sem hér segir, samanborið við undanfarin ár (stofnanirnar eru í stafrófsröð í listanum):

 

Löggæslustofnun 2012 2013 2014 2015
Lögreglan á Austurlandi
101
Lögreglan á Suðurlandi
68
Lögreglan á Vestfjörðum
45
Lögregluskóli ríkisins 16 * 74 134
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu 165 143 137 145
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 90 48 81 72
Ríkislögreglustjórinn 161 118 135 100
Sérstakur saksóknari 5 8 14 35
Sýslumaðurinn á Akranesi 10 12 10 *
Sýslumaðurinn á Akureyri 166 149 141 *
Sýslumaðurinn á Blönduósi 76 97 29 *
Sýslumaðurinn í Borgarnesi  8 44 47 *
Sýslumaðurinn á Eskifirði 172 140 138  *
Sýslumaðurinn á Húsavík 27 20 11  *
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli 53 21 9 *
Sýslumaðurinn á Ísafirði 49 18 22 *
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki 7 * 21 *
Sýslumaðurinn á Selfossi 149 135 114 *
Sýslumaður Snæfellinga 69 77 30 *
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði 24 87 79 *
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 110 68 32 *

 

* Vegna skipulagsbreytinga í lögreglu um liðin áramót er listinn hér að ofan ekki marktækur fyrir þau lögreglustjóraembætti sem áður tilheyrðu sýslumannsembættum á viðkomandi stöðum.  Einu sértæku upplýsingarnar sem er að finna yfir hin nýju lögregluembætti eru fyrir embættin á Austurlandi, Suðurlandi og Vestfjörðum.  Sjá nánari upplýsingar á vef SFR (www.sfr.is).

 

LL áréttar sem fyrr mikilvægi þess að allir lögreglumenn taki þátt í könnunum sem þessum, sem og öðrum könnunum sem lögreglumönnum er boðin þátttaka í, en þær eru m.a. notaðar í viðræðum við viðsemjendur LL í tengslum við úrbætur í starfsmannamálum, aðbúnaði, kjaramálum o.fl.

Til baka