Fréttir

Baráttufundur í Háskólabíó

11 sep. 2015

Þriðjudaginn 15. september n.k., kl. 17:00 er fyrirhugaður sameiginlegur baráttufundur Landssambands lögreglumanna, SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu og Sjúkraliðafélags Íslands í Háskólabíó við Hagatorg.

 

Lögreglumenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og vera vel sýnilegir á honum.  

 

Fundinum verður streymt í gegnum Internetið þ.a. þeir sem ekki eiga heimangegnt geta fylgst með honum þar.

 

Fundurinn verður auglýstur sérstaklega í fjölmiðlum.

Til baka