Fréttir

Kosning um nýtt framlengingarsamkomulag kjarasamnings LL

7 nóv. 2015

Ráðgert er að kosning um nýtt framlengingarsamkomulag kjarasamnings LL við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hefjist þriðjudaginn 10. nóvember n.k. 

 

Kosningu um samkomulagið lýkur formlega á hádegi miðvikudaginn 18. nóvember n.k.

 

Kosningin verður rafræn eins og verið hefur undanfarin ár og munu lögreglumenn fá senda til sín einstaka tölvupósta með hlekk inn á kjörseðilinn líkt og verið hefur.

 

Verið er að vinna í kjörskrá um þessar mundir og mun hún verða birt á lokaðri síðu félagsmanna LL fljótlega.  Þeir lögreglumenn sem einhverra hluta vegna fá ekki sendan tölvupóst, með hlekk á kjörseðilinn, í kringum 10 – 12. nóvember n.k. eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu LL til að fá úr því skorið, frá kjörstjórn LL, hvort þeir hafi atkvæðisrétt við kosninguna eður ei.  

Þá er einnig hægt að gera athugasemd við kjörskránna, þegar hún hefur verið birt á lokaða svæði heimasíðunnar, með því að hafa samband við skrifstofu LL. 

Til baka