Fréttir

Niðurstaða atkvæðagreiðslu um framlengingu kjarasamnings

18 nóv. 2015

Atkvæðagreiðslu um breytingar á og framlengingu kjarasamningi LL við fjármálaráðherra er lokið og liggur niðurstaða nú fyrir.

 

Vegna lagatæknilegra atriði, sem verið er að skoða af lögfræðingi LL, verður ekki hægt að birta niðurstöðuna opinberlega að svo stöddu.

 

Fenginn hefur verið frestur hjá formanni samninganefndar ríkisins, til kl. 16:00 á morgun, til að skila niðurstöðunni.

 

Engar frekari upplýsingar verða gefnar út opinberlega um niðurstöðu kosningarinnar fyrr en álit lögmanns LL liggur fyrir.

Til baka