Fréttir

Kynningarfundur um lífeyrismál fyrir sjóðfélaga í LSR og LH

9 maí. 2016

Kynningarfundir um lífeyrismál fyrir sjóðfélaga í LSR og LH 18. og 19. maí 2016

 

Árlega eru haldnir kynningarfundir fyrir sjóðfélaga í A- og B-deild LSR sem og Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga.

 

Á fundunum er hægt að fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

 

Sjóðfélagar skrá sig fyrirfram á fundina og er hægt að velja um fjórar tímasetningar:

 

18. maí kl. 08:30-10:00

18. maí kl. 16:30-18:00

19. maí kl. 08:30-10:00

19. maí kl. 16:30-18:00

 

Fundirnir verða haldnir í húsnæði LSR að Engjateigi 11, 105 Reykjavík.

 

Boðið er upp á kaffiveitingar.

 

Nauðsynlegt er að skrá sig á fundina með því að hringja í síma 510-6100 eða senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is„>lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu. Einnig er hægt að senda inn spurningar, sem óskað er eftir að svarað verði á fundinum. 

Til baka